Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína fór fram í Iðnó mánudagskvöld 7. apríl 2014 og var fjölsóttur.
Ræður fluttu Brynja Silja Pálmadóttir og Magnús Magnússon, sjálfboðaliðar í Vesturbakkanum á síðasta ári og Fidaa Al Zaanin frá Gaza, jafnréttisnemi við HÍ. Bjartmar Guðlaugsson flutti nokkur lög.
Að þessari dagskrá lokinni fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf. Í stjórnarkjöri varð mikil endurnýjun og kom sex nýir til starfa.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar þann 14. apríl skipti hún með sér verkum:
- Sveinn Rúnar Hauksson formaður
- Elva Björk Barkardóttir ritari, ritstjóri
- Magnús Magnússon gjaldkeri, söfnunarstjóri
- Bryndís Silja Pálmadóttir sjálfboðaliðastjóri, nýliðastjóri, kynningarstjóri
- Valdimar A. Arnþórsson sniðgöngustjóri, alþjóðastjóri
- Haukur Sveinsson viðburðastjóri, aðgerðastjóri
- Einar Steinn Valgarðsson kvikmyndasýningarstjóri
- Eldar Ástþórsson varaformaður, fjölmiðlastjóri
- Níels Alvin Níelsson sölustjóri
- Þóra Á. Arnfinnsdóttir spjaldskrárritari
- Linda Ósk Árnadóttir í varastjórn án portfolio

