Miðvikudagur 26. janúar 2011 Opinn fundur á Háskólatorgi – Fimmtudaginn 27. janúar kl 12.00
Er hafin internet bylting í Mið-Austurlöndum? Má búast við því að fleiri lönd á þessu heimssvæði fylgi í kjölfar atburðanna í Túnis? Mótmæli eru boðuð í Egyptalandi og stjórnvöld hræðast þessi nýju tæki borgaranna. En verður þessi þróun stöðvuð? Hver er staðan í Palestínu, hvaða áhrif hafa uppljóstranir Wikileaks og hverjar eru framtíðarhorfurnar?
Alþjóðamálastofnun í samstarfi við félagið Ísland-Palestína býður til hádegisfundar um það eldfima ástand sem nú ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs, fimmtudaginn 27. janúar frá kl. 12 til 13 í stofu 104 á Háskólatorgi. Frummælendur eru;
- Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor við Williams háskóla í Bandaríkjunum og einn fremsti sérfræðingur Íslands í málefnum Mið-Austurlanda,
- Bogi Ágústsson, fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu, sem lengi hefur fylgst með gangi máli á þessu heimssvæði
- Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína, sem hefur um árabil barist fyrir réttindum Palestínumanna.
Allir velkomnir!

