Samstöðufundur verður haldinn í Iðnó þriðjudagskvöldið 29. nóvember 2011 þar sem því verður fagnað að Alþingi er í þann mund að samþykkja ályktun um að viðurkenna skuli sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Dagurinn 29. nóvember er alþjóðlegur samstöðudagur með réttindum palestínsku þjóðarinnar að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna og jafnframt stofndagur Félagsins Ísland-Palestína, sem sett var á fót þennan dag árið 1987.
Fundurinn heffst klukkan 20.00 í Iðnó (efri hæð).
Dagskrá
- Ávarp: Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkisnefndar Alþingis
- Frásögn frá Gaza: Lára Jónsdóttir, gjaldkeri FÍP, segir frá nýlegri ferð sinni í málum og myndum
- Salmann Tamimi tölvunafræðingur, fyrsti Palestínumaðurinn til að setjast hér að heldur ræðu: Af hverju sjálfstætt ríi Palestínu?
- Bogomil Font (Sigtryggur Baldursson) flytur íslensk dægurlög frá síðustu öld við píanóundirleik.
- Birgitta Jónsdóttir þingkona og skáld flytur ljóðaþýðingar eftir palestínska skáldið Mahmoud Darwish (1941-2008)
Félagar fjölmenni og takið með ykkur gesti!

