Föstudagur 11. febrúar 2011 Félagið Ísland Palestína óskar egypsku þjóðinni til hamingju með að hafa í dag, 11. febrúar 2011, með staðföstum mótmælum komið einvaldinum Hosni Mubarak frá völdum. Félagið lýsir sömuleiðis yfir stuðningi við egypsku þjóðina og óskum hennar um að koma á lýðræðislegri stjórnarhætti. Á morgun, laugardaginn 12. febrúar verður haldinn samstöðumótmælafundur með mótmælendum sem berjast fyrir mannréttindum. Að fundinum koma hjálparsamtökin Amnesty International og er studdur af Blaðamannafélagi Íslands, Félagi múslima á Íslandi, Kvenréttindafélagi Íslands, Menningar- og friðarsamtökunum MFÍK, PEN á Íslandi, Rauðum vettvangi, Rithöfundasambandi Íslands, ReykjavíkurAkademíunni, Sambandi ungra framsóknarmanna, Sambandi ungra sjálfstæðismanna og Ungum vinstri grænum. Bætist Félagið Ísland-Palestína hér með við þann lista.
Alþjóðlegur samstöðudagur er laugardaginn 12. febrúar. Þúsundir manna koma þá saman í samstöðu með íbúum Egyptalands og annarra Mið-Austurlanda. Fólk um allan heim tekur undir baráttu þeirra gegn kúgun og kröfur þeirra um frelsi, mannréttindi og umbætur í
samfélaginu. Samstöðufundir verða ekki bara á Íslandi á laugardag heldur um allan heim, m.a. í Ástralíu, Austurríki, Bangladess, Belgíu, Benín, Bretlandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu, Japan, Kanada, Malí, Noregi, Púertó Ríkó, Slóveníu, Slóvakíu, Suður-Kóreu, Spáni, Sviss, Tyrklandi og Þýskalandi.
Fólk er beðið um að sýna samstöðu sína með því að klæðast svörtu, hvítu eða rauðu (litum egypska fánans)
Við viljum að íbúar Egyptalands viti að þó margar ríkisstjórnir utan Egyptalands séu hikandi við að styðja breytingar þá stendur allur almenningur heilshugar með mótmælendum í Kaíró og annars staðar.
Mætum öll!

