Opinn fundur á Iðnó

Föstudagur 9. janúar 2009

Opinn fundur fer fram á Iðnó vegna fjöldamorðanna á Gaza, laugardaginn 10. janúar kl 16.00.

Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, segir frá lífi og starfi bandaríska friðarsinnans Rachel Corrie sem lét lífið á Gaza-svæðinu 16. mars 2005 þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana. Þóra Karítas fer með hlutverk Rachel í uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu „Ég heiti Rachel Corrie“ sem frumsýnt verður 19. mars.

Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, flytur ræðu.

Tekið verður viðal við Jean Calder, ástralska konu sem býr og starfar í Khan Younis á Gaza-ströndinni. Jean Calder hefur unnið í þrjá áratugi að endurhæfingu fatlaðra á vegum Palestínska rauða hálfmánans í Líbanon, Egyptalandi og á Gaza síðustu 13 árin.

Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, flytur ræðu.

Bubbi Morthens flytur nokkur lög. Von er á frumflutningi lags um fjöldamorðin á Gaza.

Kertafleyting á Tjörninni til minningar um fórnarlömb fjöldamorðanna á Gaza.

Fundarstjóri: Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína.