Samstöðufundur með Palestínu

Fimmtudagur 25. nóvember 2010

Alþjóðlegur samstöðudagur til stuðnings palestínsku þjóðinni er haldinn 29. nóvember ár hvert að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna og Félagið Ísland-Palstína var stofnað á þessum degi árið 1987. Félagið hefur alla tíð gert þennan dag að baráttudegi fyrir grundvallarréttindum palestínsku þjóðarinnar.

Dagskrá:

  • Árni Þór Sigurðsson alþingismaður, formaður utanríkismálanefndar Alþingis flytur ræðu
  • Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður félagsins segir frá nýlegri ferð til Gaza í máli og myndum
  • Kristín Sveinsdóttir syngur nokkur íslensk lög við undirleik Jóns Stefánssonar
  • Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndargerðarmaður og stjórnarmaður FÍP sýnir tvær stuttmyndir frá Gaza

Fundurinn er öllum opinn – ókeypis aðgangur