SAMSTÖÐUFUNDUR MEÐ PALESTÍNUMÖNNUM
Lækjartorgi, föstudaginn 9. júlí kl 17.00
Í tilefni alþjóðlegs samstöðudags til stuðnings hnattrænni herferð fyrir viðskiptalegri, stjórnmálalegri og menningarlegri sniðgöngu gagnvart Ísrael vegna hernáms þeirra í Palestínu stendur Félagið Ísland-Palestína fyrir útifundi föstudaginn 9. júlí kl 17.00 á Lækjartorgi.
Mannréttindarsamtök, stjórnmálaflokkar, verkalýðsfélög og ýmis frjáls félagasamtök í hertekinni Palestínu hafa hvatt heimsbyggðina til að sniðganga ísraelskar vörur og slíta menningar- og stjórnmálasambandi við Ísrael – þar til stjórnvöld þar í landi fari að alþjóðalögum og samþykkum Sameinuðu þjóðanna oghætti hernámi sínu í Palestínu.
Boycott National Committee (BNC) í Palestínu hafa kallað eftir því að föstudagurinn 9. júlí verði vakið athygli á sniðgönguátakinu um heim allan. Þennan dag verður þess minnst að sex ár verða liðin frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag dæmdi Aðskilnaðarmúrinn sem Ísraelsher hefur verið að reisa í Palestínu ólöglegan og skyldaði jafnframt Ísraelsstjórn til að rífa múrinn þegar í stað og greiða fórnarlömbum þess, m.a. þá sem misst hafa bújarðir sínar og heimili, skaðabætur. Þennan úrskurð hefur Ísraelsstjórn virt að vettugi.
Aðskilnaðarmúrinn er ein grimmasta birtingarmynd hernáms Palestínu, sem nú hefur staðið á Vesturbakkanum og Gaza frá árinu 1967 eða í 43 ár. Múrinn er byggður á herteknu palestínsku landi á Vesturbakkanum – en ekki landamærum Ísraels og Vesturbakka Palestínu eins og stundum er haldið fram (m.a. í fréttum innlendra fjölmiðla af atburðum fyrir botni Miðjarðarhafs). Múrinn einangrar byggðir Palestínumanna, kemur í veg fyrir ferðafrelsi fólks í eigin heimalandi, að fólk geti sinnt námi, komist til vinnu eða sinnt bújörðum sínum.
Á fundinum tala:
Sveinn Rúnar Hauksson
Læknir og formaður Félagsins Ísland – Palestína
Salmann Tamimi
Tölvunarfræðingur og formaður Félags múslima á Íslandi
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir
Sagnfræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum, m.a. gegn Apartheid í Suður Afríku á sínum tíma
Fjölmennum öll og sýnum Palestínumönnum samstöðu!
Niður með aðskilnaðarmúrinn – Frjáls Palestína!
Frekari upplýsingar veitir:
Haukur Sveinsson, S: 663 7787

