Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína verður haldinn í Norræna húsinu, sunnudaginn 3. mars og hefst kl. 15.
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur Borg á Mýrum, flytur erindi: Kirkjan, Ísrael og frjáls Palestína. Ellen Kristjánsdóttir flytur nokkur lög við undirleik Eyþórs Gunnarssonar.
Venjuleg aðalfundarstörf: Ársskýrslur, stjórnarkjör og önnur mál.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.

